Vín með jólamatnum 2019.

Þegar kemur að hátíðamat er ýmislegt í boði og margir með ákveðnar hefðir. Sumir vilja hafa hangikjöt á jóladag, aðrir vilja hamborgarhrygg, enn aðrir eru farnir að snúa sér að kalkún, og sumir eru komnir í vegan fæði alla leið.  Hér að neðan ætla ég að mæla með ákveðnum vín tegundum og jafnvel vínsvæðum sem henta best (að mínu mati) með hverjum rétt og einnig mæla með einu til tveim vínum með hverjum rétti. Vínin sem mælt er með kosta öll undir kr. 4.000 .

Áður en við förum í „hefðbundna“ matinn skulum við aðeins kíkja á þann mat  sem er að verða meira og meira algengur, til dæmis:

Forréttur:

Humar og humarsúpa:

Það hefur færst í vöxt að bjóða upp á forrétt á undan og vinsælast er án efa humar eða jafnvel humarsúpa. Margir vita að Chardonnay vínþrúgan hentar vel með humar, en önnur hvítvínsþrúga hentar einnig mjög vel t.d. smell passar þurrt riesling frá Alsace. Meðal annars mæli ég auðvitað með Paul Blanck Riesling 2018 sem er frekar þurrt vín, með miklum keim af steinefnum, kalki og sítrónu. Vínið er frekar sýruríkt og frábært með humar. Verðið er 2.895 kr.

Vegan matur:

Ég hef heyrt að hnetusteik sé sérstaklega vinsæl hjá vegan fólki um jólin.  En vandamálið er að finna EKTA vegan vín, því að lífræn vín eru ekki alltaf vegan.  Er til ekta vegan vín? Eitthvað sem er lífrænt og uppfyllir allar kröfur sem vegan fólk hefur?  Það eru fjögur vín sem ég veit um. Tvö  hef ég smakkað og tvö hef ég ekki smakkað ennþá. Af þessum tveim sem ég hef smakkað mæli ég sérstaklega með, Magister Bibendi Crianza Garnacha 2016.  Vínið er með sterkan angan af kirsuberjum, kaffi og vanillu í nefinu en bragðið einkennist af kirsuberjum, kaffi, ristuðu brauði, vanillu og sterku kryddi.  Eftirbragðið er langt og gott.  Alveg tilvalið vín með bragð- og kryddmiklum vegan réttum. Verðið er 2.889 kr.

Kalkúnn:

Fuglinn „flaug“ inn á íslenska markaðinn með látum í kringum 1994-5.  Meira að segja tengdamamma mín var farin að bjóða upp á það yfir jólin!! Ég verð að viðurkenna að ég get ekki borðað þennan fugl í dag. Ég vann í mörg ár á Argentína steikhús og kalkúna jólahlaðborðið fræga gerði út af við mig varðandi þennan mat. Afgangar í staffamat í lengri tíma en ég kæri mig um að muna.  En áður en ég fékk leið á fuglinum fannst mér Pinot Noir vínþrúgan passa lang best með þessum mat. Pinot Noir er mjög fínleg þrúga og gefur yndislegt jafvægi með fuglakjöti. Eitt uppáhalds Pinot Noir vínið mitt í dag kemur auðvitað frá Burgúndí í Frakklandi og heitir Albert Bichot Secret de Famille Pinot Noir 2017. Vínið hefur fínlegan keim af jarðaberjum og villisveppum og létt krydd einkenni. Eftirbragðið er langt og ekki spillir verðið eða 2.998 kr.      

Hangikjöt og hamborgarhryggur:

 Ég setti þetta tvennt saman, ekki vegna þess að þetta er eins matur, af og frá, eitt er grís og hitt er lamb!! En það er eitt sem þau eiga sameiginlegt sem gerir það að sama vínþrúgan passar með báðum, saltið!! Það er gríðarlega erfitt að para vín með söltu kjöti og kannski er það þess vegna sem að malt og appelsín hefur verið svo áberandi á jólaborðum með þessum mat. En það eru tvær vínþrúgur sem passa í raun mjög vel með báðum réttum og báðar koma frá mínu uppáhalds hvítvíns svæði Alsace. Þrúgurnar eru Gewurztraminer og Pinot Gris. Báðar þrúgurnar, þó einkenni þeirra séu ólík að mörgu leyti, eru þekktar fyrir meðal sætleika og þegar það bætist við einkenni þeirra getur það verið ómótstæðileg blanda sem smell passar með svona söltuðum mat. Varðandi Gewurtztraminer, þá er Willm Kirchberg de Barr Clos Gænsbroennel Grand Cru 2014 stórkostlegt vín. Fjólu og blóma angan í bland við apríkósu og hunang gerir þetta vín frábært með hamborgarhrygg og það passar einnig vel með hangikjöti. Þetta er eðal Grand Cru vín, og verðið er 3.899, en það er vel þess virði. Í víni úr Pinot gris þrúgunni myndi ég mæla með Arthur Metz Pinot Gris 2016, einfalt, þægilegt vín með mikið bragð af melónum, kryddi og banana. Eftirbragðið er meðal langt og gott. Vínið er á fínu verði  (2.399 kr.) og vel þess virði gæðalega að drekka með góðu hangikjöti.

Villibráð:

 Neysla á villibráð hefur eitthvað minnkað  yfir hátíðirnar svo ég ætla bara að fjalla um hreindýr. Ef þú ert svo heppin að vera með hreindýrasteik á borðum þá dugar ekkert minna en að fá bragðmikið vín sem er flókið en ekki of þungt. Eitt af mínum uppáhalds vínum í dag er Escorihuela Gascon Malbec 1884 Estate Grown 2017, frá Mendoza í Argentínu. Vínið er tannínríkt en hefur samt nóg af dökkum ávöxtum eins og sólberjum og brómberjum til að halda jafnvægi. Bættu við kaffi, kanil og negul í bragði og þú hefur vín sem hentar mjög vel með góðri safaríkri hreindýrasteik. Verðið er eiginlega hlægilegt miðað við gæðin, aðeins 2.921 kr. 

Þetta er bara rétt smjörþefurinn af vínum sem gætu passað vel með hátíðarmatnum og fyrst og fremst hugsað til að aðstoða ykkur við valið og auðvitað er þetta bara mitt álit og mín skoðun. Munið að njóta vínsins skynsamlega, sérstaklega þegar börn eru í boðinu.

Þessi færsla var birt í Uncategorized, Vínsmakkarinn mælir með og merkt sem , , , , , , , . Bókamerkja beinan tengil.

Leave a Reply