
Ef þú vilt komast að því hvernig Stout bjór með 25% alkohól, sem á að bragðast eins og súkkulaði hjúpuð kleinu frá Siglufirði er, ekki koma til mín, ég er ekki dómbær á svona bjóra. En ég held að ég geti alveg dæmt lager og pilsner bjóra.
Svo ég ætla að bjóða einn „gamlan“ og góðann velkominn aftur til Íslands, Warsteiner Beer. Þýska vín löggjöfin gerir miklar kröfur til framleiðenda og það skilar sér óneitanlega til okkar, og Warsteiner er lýsandi dæmi um hágæða lager bjór. Bjórinn freyðir rosalega vel og gefur af sér mikið af humla, karamellu og bygg bragði og eftirbragðið entist lengi og hafði meira af humlum og beiskju en ég átti von á. Samt var bjórinn ferskur og alls ekki of þungur. Tilvalið að fá sér einn (eða tvo) á meðan maður stendur úti að grilla í sumar.
Verðið er 365 kr. fyrir 50 cl. dós.
Stefán Guðjónsson hefur verið viðloðandi vín og vín umfjöllin í mörg ár. Á sínum yngri árum tók hann þátt í ýmsir vínþjónakeppnin hérlendis og meðal annars vann fimm sínum og lenti í öðru sæti fimm sínum af tíu keppnum sem hann tók þátt í. Nánari upplýsingar má finna með því að smella
Davíð Freyr Björnsson sá um hönnun vefsíðunnar. Hann er með B.S. gráður í tölvunarfræði og hagfræði frá Háskóla Íslands og stundar nú nám í Data Science við Chalmers University of Technology í Gautaborg í Svíþjóð. Nánari upplýsingar um hann má finna með því að smella