Vínsmakkarinn mælir með.
Portúgölsk vín hafa alltaf verið bragðgóð og í frekar háum gæðum miðað við verð. Miðað við hversu mikið íslendingar hafa ferðast til Portúgals á undanförnum árum, þá hefur það komið mér pínu á óvart hversu illa portúgölsk vín hafa selst í gegnum árin. En sem betur fer er það að breytast hægt og rólega.
Þetta vín er lýsandi dæmi um mikil gæði miðað við verð. Svartar plómur, sveskjur, rúsínur, kaffi, eik og dökkt súkkulaði eru alls ráðandi bæði í bragði og lykt. Það hefur þurrt tannínkríkt eftirbragð sem endist þokkalega lengi. Mjög gott vín á mjög góðu verði 2.685 kr.. Frábært með lambi eða nautlund í tærri sósu. Umboðsaðili er UVA.