Bjór mánaðarins október, 2019.

Vonandi datt engum í hug að ég myndi EKKI velja Oktoberfest bjór sem bjór mánaðarins í október??

Fyrir valinu var Löwenbrau Oktoberfest Bier, ljós lager með frekar hátt alkohól magn eða 6.1%. Bjórinn er bestur frekar vel kældur finnst mér, og gefur smá malt og humla bragð. Þetta er ekki bjór sem gerir miklar kröfur til bragðlaukanna eða lætur þig hugsa um tilgang lífsins, enda var hann ekki bruggaður til að gera slíkt. Þessi bjór er til að njóta í góðum félagsskap og skemmta sér. Verðið er 499 kr. fyrir 50 cl. dós.

Þessi færsla var birt í Bjór mánaðarins, Uncategorized og merkt sem , , , . Bókamerkja beinan tengil.

Leave a Reply