Down Under Shiraz-Cabernet Sauvignon
Down Under Shiraz-Cabernet Sauvignon 2017 frá Ástralíu er lýsandi dæmi um hvernig góð markaðssetning á að vera hjá vínframleiðanda (eitthvað sem Frökkum veitir ekki af að læra), einfalt nafn, þokkalega fallegur miði og áhersla lögð á það sem er að slá í gegn hjá neytendum í dag, sem sagt það stendur stórum stöfum Organic (lífrænt) á áberandi stað!
Það ásamt verðinu, 2.648 kr. er nógu góð ástæða til að smakka vínið, en það þarf að hafa fleira með sér, og vínið þarf þá að smakkast vel. Og Down Under vínið stendur undir væntingum, er bragðmikið en samt ekki of þungt með svörtum kirsuberjum, papriku, plómu, kanil og kaffi í bæði bragði og lykt. Eftirbragðið er þokkalega langt og gott. Þetta er ekki vín til að geyma, heldur er það tilbúið núna og tilvalið með grilluðu lambi eða vel kryddaðri grísalund. Þess má geta að Down Under fékk gyllta glasið í ár svo það eru greinilega fleiri sammála mér varðandi gæðin. Umboðsaðili er JP&B ehf.
Eina pirrandi varðandi þetta vín er að ég fer alltaf að raula lagið Down Under með hljómsveitinni Men at work þegar ég sé nafnið!! Til að gera lífið leitt hjá fleirum læt ég link á myndband Down Under fylgja með!!

Stefán Guðjónsson hefur verið viðloðandi vín og vín umfjöllin í mörg ár. Á sínum yngri árum tók hann þátt í ýmsir vínþjónakeppnin hérlendis og meðal annars vann fimm sínum og lenti í öðru sæti fimm sínum af tíu keppnum sem hann tók þátt í. Nánari upplýsingar má finna með því að smella
Davíð Freyr Björnsson sá um hönnun vefsíðunnar. Hann er með B.S. gráður í tölvunarfræði og hagfræði frá Háskóla Íslands og stundar nú nám í Data Science við Chalmers University of Technology í Gautaborg í Svíþjóð. Nánari upplýsingar um hann má finna með því að smella
Geggjað lag en hef ekki smakkað vínið;)