Sólin skín, fuglarnir syngja, logn og vor í lofti og bara núll gráður! Vorið er greinilega komið! Með það í huga ákvað ég að fjalla um tvö góð en mjög ólík vín frá sama vínframleiðanda frá Chile, eitt Sauvignon Blanc og eitt Merlot. Þeir sem þekkja mig eru sennilega ekki hissa á að ég er að fjalla um Merlot frá Chile, enda finnst mér Merlot þaðan almennt í háum gæðum. Aftur á móti heyrir það til undantekninga að ég fjalli um Sauvignon Blanc frá Chile
Ég myndi segja að fyrir hvert gott sauvignon blanc frá Chile sem ég hef smakkað eru ca. tíu sem eru í besta falli ómerkileg (að mínu mati). Það þarf að vera virkilega flott sauvignon blanc frá Chile til að draga mig frá góðu Ný sjálensku Sauvignon Blanc eða Sancerre frá Frakklandi!
Með það í huga eigum við ekki að byrja á Sauvignon Blanc?
Aresti Trisquel Sauvignon Blanc Gran reserve 2020 frá Anconcagua Chile er þrátt fyrir ungan aldur gríðarlega þroskað og opið í lykt. Það fer ekki milli mála að hér er ekta
Niðurstaða: Frábært vín sem minnir mig frekar á gott Sancerre en ný heims vín, það passar vel með salati en ennþá betur með sólinni (ef við fáum sól í ár)! Verðið er hlægilegt eða aðeins 2.989 kr.
Niðurstaða: Gott vín, má drekka núna en væri sennilega best eftir 3 ár. Verðið er sanngjarnt á 3.365 kr. og þetta er tilvalið með grilluðu fuglakjöti eða ostum.
